Meconopsis torquata

Meconopsis torquata[2] er blásól ættuð frá Tíbet.[3] Hún blómstrar stórum fölbláum til fölrauðum blómum í 25-81 sm skúf upp úr hvirfingu loðinna, lensulaga grænna blaða. Hún er einblómga (vex í nokkur ár og deyr svo eftir blómgun eins og tvíærar jurtir, "monocarpic").[4]

Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ættbálkur: Sóleyjabálkur (Ranunculales)
Ætt: Draumsóleyjaætt (Papaveraceae)
Ættkvísl: Blásólir (Meconopsis)
Tegund:
M. torquata

Tvínefni
Meconopsis torquata
Prain[1]
Samheiti

Papaver torquatum (Prain) Christenh. & Byng


Tilvísanir

breyta
  1. Prain (1906) , In: Ann. Bot. 20: 355
  2. „Meconopsis torquata Prain | COL“. www.catalogueoflife.org. Sótt 29. janúar 2024.
  3. „Meconopsis torquata Prain | Plants of the World Online | Kew Science“. Plants of the World Online (enska). Sótt 29. janúar 2024.
  4. Christopher Grey-Wilson (2014). The genus Meconopsis - Blue poppies and their relatives. Kew Publishing Royal botanic gardens, Kew. bls. 132-134. ISBN 978-1-84246-369-7.
   Þessi grasafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.