Markéta Irglová
Markéta Irglová er tékknesk-íslensk listakona. Hún varð þekkt fyrir að leika í myndinni Once, þar sem hún vann til Óskars- og Grammyverðlauna fyrir besta kvikmyndalagið, Falling Slowly, ásamt meðleikara og -spilara, Glen Hansard. Þau kynntust í Tékklandi og stofnuðu saman bandið The Swell Season.
Markéta Irglová | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Markéta Irglová 28. febrúar 1988 |
Uppruni | Valašské Meziříčí, Tékklandi |
Stefnur | Akústík, þjóðlagatónlist, indie popp, |
Samvinna | The Swell Season, Glen Hansard |
Vefsíða | http://marketairglovamusic.com/ |
Irglová lærði á píanó 7 ára og gítar 8 ára. Árið 2012 hélt hún til Íslands eftir að hafa búið í New York og tók upp sólóplötu. Hún varð ástfangin af upptökustjóranum, Sturlu Míó Þórisson, og giftist honum á endanum. Hún talar íslensku reiprennandi og sótti um ríkisborgararétt.
Árið 2021 hugðist Markéta taka þátt í forkeppni Eurovision á Íslandi. [1]
Útgáfur
breytaThe Swell Season
breyta- The Swell Season (2006)
- Once (Soundtrack) (2007)
- Strict Joy (2009)
Sóló
breyta- Anar (2011)
- Muna (2014)
Kvikmyndir
breyta- Once (2007)
- The Swell Season (2011)
- Home Is Here (2016)
Tilvísanir
breyta- ↑ Óskarsverðlaunahafi vill taka þátt í söngvakeppninni Rúv, sótt 25/9 2021