María 2. Englandsdrottning
(Endurbeint frá María 2.)
María 2. Englandsdrottning (30. apríl 1662 – 28. desember 1694) var drottning Englands, Skotlands og Írlands ásamt eiginmanni sínum, Vilhjálmi frá 1689 til dauðadags. Þau Vilhjálmur voru bæði mótmælendatrúar og komust til valda í kjölfar Dýrlegu byltingarinnar þar sem föður Maríu, hinum kaþólska Jakobi 2., var steypt af stóli. Eftir lát hennar ríkti Vilhjálmur einn í átta ár en við lát hans tók systir Maríu, Anna, við krúnunni.
Fyrirrennari: Jakob 2. |
|
Eftirmaður: Vilhjálmur 2. |
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Maríu 2..