Mangareva
Mangareva er stærst Gambíer-eyja í Frönsku Pólynesíu. 1650 manns búa á eyjunni. Rikitea er stærsti bærinn á eyjunni og er hann talinn einskonar höfuðstaður Gambíer-eyja. Flatarmál Mangareva er 18 km² sem gerir 56 % af heildarflatarmáli Gambíer-eyja. Hæsti tindur Mangareva, og Gambíer-eyja, er Mt. Duff (441 m).