Mánar - Mánar
Mánar er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1971. Hljóðritun fór fram í Metronome-studió (tækni-maður Bent Hulröj) og Rosenberg-studíó (tækni-maður Freddy Hansson) Kaupmannahöfn. Pressun plötunnar annaðist Nera í Osló. Myndir á umslagi tók Óli Páll. Setningu texta annaðist Prentsmiðja Jóns Helgasonar, en prentun umslags Grafik hf.
Mánar | |
---|---|
Breiðskífa | |
Flytjandi | Mánar |
Gefin út | 1971 |
Stefna | Framsækið Rokk |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Gunnar Þórðarson |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breytaNr. | Titill | Lagahöfundur/ar | Lengd |
---|---|---|---|
1. | „Líf þitt“ | Guðmundur Benediktsson og Smári Kristjánsson | 2:21 |
2. | „Hvers vegna?“ | Guðmundur Benediktsson | 3:07 |
3. | „Söngur Satans“ | Ólafur Þórarinsson | 3:21 |
4. | „Litli Fuglinn“ | Ólafur Þórarinsson | 2:20 |
5. | „Ég horfi á brimið“ | Ólafur Þórarinsson | 2:28 |
6. | „Leikur að vonum“ | Ólafur Þórarinsson | 2:56 |
7. | „Haustregn“ | Ólafur Þórarinsson | 3:48 |
8. | „Villi verkamaður“ | Ólafur Þórarinsson | 2:50 |
9. | „Sandkorn“ | Björn Þórarinsson | 3:12 |
10. | „Prelúdía í A moll“ | Ólafur Þórarinsson | 2:11 |
11. | „Þriðja heimstyrjöldin“ | Ólafur Þórarinsson | 4:29 33:03 |
Meðlimir
breyta- Smári Kristjánsson - Bassi og bakraddir
- Ragnar Sigurjónsson - Trommur
- Ólafur Þórarinsson - Gítar, þverflauta og söngur
- Björn Þórarinsson - Orgel og bakraddir
- Guðmundur Benediktsson - Píanó og bakraddir
- Freddy Hanson - Hljóðmaður, Rosenberg Studio
- Bent Hulröj - Hljóðmaður, Metronome Studio
- Gunnar Þórðarson - Upptökustjóri
- Óli Páll - Ljósmyndari
Texti af innblaði plötuumslags
breytaHVERS VEGNA? - Lag: Guðmundur Benediktsson Ljóð: Ómar Halldórsson
- Hvers vegna er lífið allt svo undarlegt?
- Hvers vegna er lífið aðeins bið?
- Hvers vegna er fólkið allt svo fáránlegt?
- Hvers vegna finnur það ei frið?
- Hvers vegna öðlast sumir aldrei frœgð?
- Hvers vegna gráta sumir sárt?
- Hvers vegna er lífsbraut sumra
- lýst og fœgð?
- Hvers vegna gefa þeir ei grið?
- Þú veizt að auði fylgja alltaf völd.
- Þú veizt að fátækt fylgir smán.
- Hvers vegna er lífið allt svo undarlegt?
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaÞegar SG-hljómplötur gáfu út fyrstu plötuna með Mánum fyrir tveimur árum mátti strax heyra, að hér var hljómsveit á ferðínni, sem margt hafði til brunns að bera til að komast í röð fremstu hljómsveita á Íslandi. Með sinni næstu plötu, sem kom út fyrir ári, sönnuðu Mánar þetta enn betur, því sú plata tók hinni fyrstu fram að öllu leyti. Nú var kominn tími til að leggja enn veigameiri verkefni fyrir Mána.
Því var það, að SG-hljómplötur gerðu Mánum tilboð um að semja stóra plötu og hljóðrita við hin beztu fáanlegu skilyrði. Mánar hafa unnið að þessari hljómplötu undanfarna mánuði og hljóðrituðu hana síðan í Kaupmannahöfn í miðjum nóvember. Gunnar Þórðarson, gítarleikari hafði fylgst með Mánum síðustu œfingar fyrír hljóðritun og fór síðan utan með þeim, þar sem hann stjórnaði hljóðritun (producer) allra laganna, auk þess sem hann útsetti fyrir fjögur strengjahljóðfæri í einu lagi. Mánar eru Ólafur Þórarinsson, gítar og flauta. Ragnar Sigurjónsson, trommur. Björn Þórarinsson, orgel Smári Kristjánsson, bassi. Guðmundur Benediktsson, píanó.
|
||