Lelystad
Lelystad er höfuðborg héraðsins Flevoland í Hollandi. Hún var stofnuð 1967, skömmu eftir að landnám hófst á Flevoland, og nefnd eftir Cornelis Lely, verkfræðingnum sem átti heiðurinn að flóðagarðinum mikla fyrir mynni Ijsselmeer. Borgin er enn mjög ung. Þar búa ekki nema um 76 þúsund íbúa (2014) en borgin er ört stækkandi. Lelystad liggur við samskeytin á Ijsselmeer og Markermeer. Þaðan liggur akvegur yfir varnargarð alla leið til Enkhuizen í Norður-Hollandi. Enn í dag liggur Lelystad fimm metrum fyrir neðan sjávarmál.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Lelystad.