Blýtarga
(Endurbeint frá Lecanora rupicola)
Blýtarga (fræðiheiti: Lecanora rupicola) er hrúðurfléttutegund af törguætt. Hún er algeng á Íslandi á landinu norðanverðu frá Vestfjörðum yfir á Austfirði.[1]
Blýtarga | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Blýtarga á grjóti.
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Lecanora rupicola (L.) Zahlbr. (1928) | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Útlit
breytaBlýtarga hefur hrúðurkennt, reitaskipt þal þar sem reitirnir eru 0,3-2 mm í þvermál. Efra borð fléttunnar er grátt, slétt og með matta áferð. Forþalið er grásvart. askhirslurnar eru oft til staðar. Þær hafa hvíta þalrönd blýgráar að lit og þaðan fær fléttan nafnið sitt.[1]
Gró blýtörgu eru átta í hverjum aski, glær, einhólfa, egglaga eða sporöskjulaga, 10-13 x 5-7 μm að stærð.[1]
Efnafræði
breytaBlýtarga inniheldur þekktu fléttuefnin atranórin, roccellinsýru og thiófaninsýru.[1] Þalsvörunin er K+ gul en verður svo rauðgul, C+ gul sem verður svo rauðgul, KC- og P+ ljósgul.[1]