Lýsutarga
(Endurbeint frá Lecanora argopholis)
Lýsutarga (fræðiheiti: Lecanora argopholis) er tegund fléttna af törguætt.[1]
Lýsutarga | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Lýsutarga á sandsteini í Utah-fylki.
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Lecanora argopholis |
Útlit
breytaÞal lýsutörgu er hvítt eða grátt, nokkuð þykkt og reitaskipt. Stundum mynda þalreitirnir þykkar flögur sem losna frá yfirborðinu. Á þalinu eru askhirslur sem eru rauðbrúnar eða svartbrúnar, með gulhvíta gljáandi þalrönd.[1]
Askgróin eru glær, einhólfa, sporbaugótt og 9-13 x 5-7,5 míkron að stærð.[1]
Útbreiðsla og búsvæði
breytaLýsutarga vex á klettum, gjarnan á sjávarklettum. Hún finnst á Íslandi en er fremur sjaldgæf þar sem hún finnst aðeins á nokkrum stöðum á miðju Norðurlandi.[1]
Efnafræði
breytaLýsutarga inniheldur fléttuefnin atranórin, epanórin, gangaleoidin og zeórín.[1] Þalsvörun lýsutörgu er K gul, C neikvæð eða C gul, KC neikvæð og P neikvæð.[1]