Langferðahjól
Langferðahjól er reiðhjól sem er hannað eða uppsett fyrir lengri hjólaferðir eða ferðalög. Það getur verið með sveigjanlegra stell og lengra á milli hjóla til að auka þægindi, sterkari hjól sem geta borið farangur, og festingar fyrir bretti, bögglabera og flöskuhaldara.
Langferðahjól eru annars mjög fjölbreytt og ólík eftir því hvers konar ferðalagi þau eiga að þjóna. Fyrir lengri ferðir geta þau til dæmis verið dempuð hjól eða malarhjól en fyrir ferðalög með ýmsum festingum fyrir búnað.