Lýsingarháttur
Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegast bættu greinina eða ræddu málið á spjallsíðunni. |
Lýsingarháttur er fallháttur (einn af háttum sagna) og gegnir líku hlutverki og lýsingarorð eða atviksorð.
Lýsingarháttur nútíðar í íslensku
breytaLýsingarháttur þátíðar í íslensku
breytaLýsingarháttur þátíðar er notaður með sögnunum „hafa“, „vera“, „verða“ (hún hafði sofið, hann er valinn, hann verður sóttur).
Lýsingarháttur þátíðar kemur einnig oft fyrir með sögnunum „geta“, „eiga“ og „fá“; til dæmis „ég get farið“, „hann fær engu ráðið“, „þú átt það skilið“. Stundum er orði, orðstofni eða forskeytið aukið framan við lýsingarhátt þátíðar; til dæmis „útsofinn“, „alfarnir“, „ókomnir“ og ætti þá að greina hann sem lýsingarorð.
Lýsingarháttur þátíðar er eini fallhátturinn í íslensku sem getur fengið ólíkar endingar eftir kynjum (ekki persónum).
Endingar
breytaLýsingarháttur þátíðar endar á -ð, -d, -t eða -inn/-in, -ður, -dur, -tur og fær endingar eftir kynjum og tölum eins og lýsingarorð, einn fallhátta (brennt barn forðast eldinn, enginn verður óbarinn biskup, hann er kominn).
Dæmi
breyta- Hann hefur komið.
- Ég hef komið.
- Húsið var málað í fyrra.
- Veggurinn var málaður tvisvar.
- Hún er komin.
- Þeir eru komnir.