Ló
Ló er samheiti yfir sjáanlegar agnir af textíltrefjum og öðrum efnum sem vanalega finnast á eða kringum fatnað. Sum efni sem notuð eru til fatagerðar svo sem bómull, hör og ull eru með mjög stuttar trefjar sem eru vafðar saman. Slíkar trefjar geta losnað með tímanum og hnökrast saman í ló. Þannig verða skyrtur og handklæði þynnri með tímanum en ló safnast fyrir í þurrkara sem flíkurnar eru þurrkaðar í.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Ló.