Krulla (eða svellkatlaspil [1]) er íþrótt sem leikin er á svelli. Tæplega 20 kílóa granítsteini er rennt eftir svellinu með það að markmiði að koma honum sem næst miðju marksins sem er á hinum enda svellisins. Tvö fjögurra manna lið keppa við hvort annað með að ná sem flestum steinum í miðju marksins.

Fjögur krullusvell hlið við hlið

Reglur

breyta

Leikurinn skiptist í lotur, liðin skiptast á að byrja loturnar, hver leikmaður kastar tvisvar sinnum og því eru samtals átta steinar sem hvort lið kastar. Það lið sem á flesta steina við miðju marksins vinnur lotuna, hitt liðið fær þá ekki stig.

Leikvöllur

breyta


 
Yfirlit leikvallar. CL: Centreline • HOL: Hogline • TL: Teeline • BL: Backline • HA: Hackline + Hacks • FGZ: Free Guard Zone


Leikvöllurinn er spegilslétt svell sem er 45,5 metra langt og 4,75 metra breitt.

Tilvísanir

breyta
  1. Nýyrði Björns Jónssonar læknis í Kanada; oft nefndur Bjössi bomm.

Tenglar

breyta
   Þessi íþróttagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.