Krossjurt
Krossjurt (fræðiheiti: Melampyrum sylvaticum) er tegund plantna af sníkjurótarætt. Krossjurt vex á Íslandi neðan 250 metra hæðar innan um birki.[1] Fundarstaðir krossjurtar á Íslandi eru fáir. Hún finnst aðeins á takmörkuðum hluta Vestfjarða: í inndölum Ísafjarðardjúps, Steingrímsfjarðar og Þorskafjarðar, auk þess sem hún finnst í Vaglaskógi.[1]
Krossjurt | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Krossjurt í blóma
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ekki metið
(IUCN)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Melampyrum sylvaticum L. |
Nánasti ættingi krossjurtar á Íslandi er engjakambjurt (M. pratense) sem vex einnig í Vaglaskógi.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Flóra Íslands (án árs). Krossjurt - Melampyrum sylvaticum. Sótt þann 24. janúar 2020.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Krossjurt.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Melampyrum sylvaticum.