Kroppinbakur
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: útskýrir ekki hvað kroppinbakur er |
Kroppinbakur (Sousa-ættkvíslin)
Tvær tegundir hlýsjávarhöfrunga tilheyra ættkvísl kroppinbaka, kryppuhöfrungur (Sousa chinensis) sem finnst á stórum svæðum á Indlandshafi og hnúðhöfrungur (Sousa teuzii) sem lifir undan ströndum Vestur-Afríku og í Gíneuflóa. Báðar þessar tegundir eru um 2,5 m á lengd og vega um 150 kg. Bæði kryppuhöfrungur og hnúðhöfrungur eru algengastir í grunnum strandsjó, í árósum og nærri leiruviðarfenjum. Kryppuhöfrungar eru einstakir að því leyti að þeir geta farið yfir þurrt land án þess að fara sér að voða þegar þeir velta sér yfir sandeyrar.