Kristínartindar
Kristínartindar eru fjöll norður af Skaftafellsheiði í svæði Skaftafells í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Þeir mynda hálfhring um fornan gíg, sem opnast til vesturs. Hæsti tindur þeirra rís 1126 metra yfir sjó. Norðan tindanna er þverhnípi, þannig að gæta verður fyllstu varúðar í göngu á tindinn. Til norðausturs frá Kristínartindum liggur örmjór kambur, Skörðin, til Skarðatinds (1385 m) sem er í jaðri Vatnajökuls. Gönguleiðir á Kristínartinda eru frá tjaldstæðinu í Skaftafelli. [1]
Kristínartindar | |
---|---|
Hæð | 1.126 metri |
Land | Ísland |
Hnit | 64°04′08″N 16°55′29″V / 64.0689°N 16.9247°V |
breyta upplýsingum |
Tilvísanir
breyta- ↑ Kristínartindar Geymt 22 apríl 2017 í Wayback Machine Nat.is. Skoðað 5. febrúar 2016.