Kotstrandarkirkja
Kotstrandarkirkja er kirkja að Kotströnd í Ölfusi. Hún var byggð 1909 og vígð þann 14. nóvember eftir að ákveðið var að leggja niður kirkjurnar að Reykjum og Arnarbæli. Kotstrandarkirkja hefur verið útkirkja frá Hveragerði frá 1940 en þangað til sat presturinn að Arnarbæli og þjónaði Hjalla-, Selvogs- og Kotstrandarkirkju. Hvergerðingar sóttu kirkju að Kotströnd þar til þeirra kirkja var fullbúin.
Kotstrandarkirkja | ||
Ölfusi (21. september 2007) Jóna Þórunn Ragnarsdóttir | ||
Almennt | ||
Byggingarár: | 1909 | |
---|---|---|
Kirkjugarður: | Við kirkjuna, hlaðinn steinveggur á tvo vegu | |
Arkitektúr | ||
Efni: | Járnklætt timbur | |
Stærð: | ~200 m² | |
Kirkjurýmið | ||
Altari: | Altaristafla úr Reykjakirkju | |
Sæti: | Fyrir 200 manns | |
Kirkjugarðurinn að Kotströnd markast af hlöðnum steinvegg á tvo vegu. Hann þjónar einnig Hveragerðiskirkju.
Tenglar
breyta- Kotstrandarkirkja á kirkjukort.net Geymt 6 mars 2016 í Wayback Machine