Kollafjarðarneskirkja
Kollafjarðarneskirkja stendur utarlega við norðanverðan Kollafjörð á Ströndum. Eftir að gömlu timburkirkjurnar á Felli í Kollafirði og Tröllatungu í Kirkjubólshreppi voru lagðar niður og sóknirnar sameinaðar, var ný kirkja reist þar árið 1909 og stendur hún enn. Kirkjan var reist á einu sumri og vígð þann 5. september. Kollafjarðarneskirkja er friðuð og er elsta steinsteypta hús í Strandasýslu.
Kollafjarðarneskirkja | ||
(2009) Jóna Þórunn | ||
Almennt | ||
Byggingarár: | 1909 | |
---|---|---|
Arkitektúr | ||
Efni: | Steinsteypa | |
Kirkjurýmið | ||
Annað: | Friðuð | |
Tenglar
breyta- Kollafjarðarneskirkja á kirkjukort.net Geymt 6 mars 2016 í Wayback Machine