„Mitt Romney“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 41:
Þegar stutt var eftir af forkosningum repúblikana var Romney svo gott sem búinn að tryggja sér útnefningu þeirra. Romney hóf því strax mikla sókn að Obama í júlí árið 2012 og hófst mikil orrahríð þeirra á milli. Herferð Obama setti á stað mikla rægingarherferð gegn Romney þar sem ásakanir um það að Romney hafi verið við stjórnvölin hjá fyrirtæki sínu Bain Capital til ársins 2001 en ekki til 1999 eins og Romney hafði ávallt haldið fram. Á sama tími fóru að birtast fréttir um ýmsar hreyfingar hjá Bain Capital þar sem fyrirtækið var að fjárfesta í fyrirtækjum sem höfðu haft það að leiðarljósi að flytja út störf bandarískra fyrirtækja. Herferð Obama gegn Romney ásamt þessum fréttum um athafnir Bain Capital voru mikið högg á kosningabaráttu Romney. En Romney var þó snöggur til og svaraði fyrir sig að bragði þar sem hann ásakaði Obama um að hafa meiri hag af því að þóknast þeim sem studdu hann fjárhagslega heldur en að vinna fyrir almenning í Bandaríkjunum. Þetta var þó aðeins byrjunin af gríðarlegri baráttu þeirra á milli.
 
Snemma ágústmánaðar tilkynnti Romney svo um varaforsetaefni sitt. Fyrir valinu varð öldungadeildarþingmaður að nafni [[Paul Ryan]] frá Wisconsin-ríki. Ryan, sem er íhaldsmaður, ervar þá formaður fjárlaganefndar. Strax í framhaldinu af tilnefningu Ryan, þar sem vangaveltur um varaforsetaefni endaði, fór fjölmiðlaathyglin að snúast meira um Ryan frekar en Romney.
 
Mitt Romney varð endanlega útnefndur sem forsetaframbjóðandi repúblikana 28. ágúst árið 2012 þar sem hann fékk 2061 atkvæði kjörbærra manna og kvenna á landsfundi Repúblikanaflokksins sem haldinn var í Tampa, Flórída. Það var nærri helmingi meira en til þurfti eða 1144 atkvæði. Á meðan landsfundinum stóð fengu þeir Romney og Ryan mikin stuðning frá samflokksmönnum sínum þar sem meðal annars John McCain, fyrrum andstæðingur Romney, hafði þau orð upp að engum manni væri eins vel treystandi í dag eins og Romney. Romney komst í fyrirsagnir helstu dagblaðanna eftir fyrstu kappræðurnar milli hans og Obama snemma í október. Þar hélt hann uppi sterkum málflutningi og fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína í þeim og fékk því mikið fylgi með sér. Næstu tvær kappræður fóru þó ekki eins vel fyrir Romney þar sem Obama kallaði hann út fyrir að vera lygara eða fara frjálslega með sannleikann. Mitt Romney tapaði svo kosningabaráttunni fyrir Barack Obama, hann viðurkenndi ósigur sinn opinberlega þann 7. nóvember 2012. <ref>[http://www.biography.com/people/mitt-romney-241055 „Mitt Romney Biography“] af biography.com Skoðað 30. okt 2012</ref> <ref>[http://elections.msnbc.msn.com/ns/politics/candidate/Mitt-Romney#.UJqG5IdLN70 „Mitt Romney News“] af msnbc.com Skoðað 31. okt 2012</ref> <ref>[http://www.bbc.co.uk/news/world-us-canada-20234161 „Romney admits defeat and congratulates Obama“] af bbc.com Skoðað 7. nóv 2012</ref>