Austurríkiskeisari
(Endurbeint frá Keisari Austurríkis)
Austurríkiskeisari var keisari Austurríska keisaradæmisins og síðar Austurrísk-ungverska keisaradæmisins frá 1804 til 1918. Titillinn var búinn til af Frans 2. keisara Heilaga rómverska ríkisins, rétt áður en það var leyst upp. Frans varð eftir það Frans 1. Austurríkiskeisari. Titillinn gekk í arf innan Habsburg-Lorraine-ættar þar til Karl 1. Austurríkiskeisari sagði af sér 1918.
Röð | Keisari | Tímabil | Ath. |
---|---|---|---|
1 | Frans I | 1804-1835 | Var síðasti keisari hins heilaga rómverska keisaradæmis |
2 | Ferdinand I | 1835-1848 | Sonur Frans I og Maríu Teresíu |
3 | Frans Jósef I | 1848-1916 | Bróðursonur Ferdinands I |
4 | Karl I | 1916-1918 | Frændi ofangreindra keisara |