Karlakór Reykjavíkur - Íslensk þjóðlög
Karlakór Reykjavíkur - Íslensk þjóðlög er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1973. Hljóðritun fór fram í Háteigskirkju í Reykjavík fyrrihluta ársins 1973 undir stjórn Péturs Steingrímssonar. Litmynd á framhlið plötuumslags tók Gunnar Hannesson. Aðrar myndir tók Óli Páll Kristjánsson.
Karlakór Reykjavíkur - Íslensk þjóðlög | |
---|---|
SG - 062 | |
Flytjandi | Karlakór Reykjavíkur |
Gefin út | 1973 |
Stefna | Þjóðlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Pétur Steingrímsson |
Lagalisti
breyta- Ísland farsælda frón - Lag - texti: Íslenskt þjóðlag - Jónas Hallgrímsson
- Hestavísur - Lag - texti: Jón Leifs - Þjóðvísur
- Úti ert þú við eyjar blár - Lag - texti: Útsetning: Páll Ísólfsson - Þjóðvísa - Einsöngur: Friðbjörn G. Jónaaon
- Gleðivísur - Lag - texti: Jón Leifs - Þjóðvísur
- Bára blá - Lag - texti: Útsetning: Páll P. Pálsson - Magnús Grímsson
- Nú er ég glaður - Lag - texti: Útsetning: Sigursveinn D. Kristinsson - Hallgrímur Pétursson
- Björt mey og hrein - Lag - texti: Útsetning: Páll P. Pálsson - Þjóðvísa
- Grænlandsvísur - Lag - texti: Útsetning: Sigfús Einarsson - Sigurður Breiðfjörð ⓘ
- Ó, jómfrú mín - Lag - texti: Útsetning: Viktor Urbancic - Þjóðkvæði
- Slyngur er kjói - Lag - texti: Jón Leifs - Þjóðvísur
- Í Babylon - Lag - texti: Útsetning: Herbert H. Ágústsson - Þjóðkvæði
- Ó, mín flaskan fríða - Lag - texti: Stílfært: Jón Ásgeirsson - Eggert Ólafsson
- Harmabótarkvæði - Lag - texti: Útsetning: Þórarinn Jónsson - Þjóðkvæði
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaEnn sendir Karlakór Reykjavikur frá sér nýja hljómplötu. Þetta er fjórða platan í útgáfuflokki kórsins og SG-hljómplatna, en hún er að því leyti frábrugðin hinum fyrri, að á henni eru aðeins sungin íslenzk þjóðlög. Eru það ýmist œfagömul þjóðlög, eða þjóðlög, sem yngri tónskáld hafa ritað upp og endurútsett svo og lög, sem samin hafa verið um gömul Íslenzk þjóðlagastef. Á fyrri plötum kórsins fyrir SG-hljómplötur var tekið fyrir sérstakt tónskáld á hverri plötu og mun þeirri útgáfu verða haldið áfram þegar næsta plata kemur út.
Það er samdóma álit hinna fjölmörgu aðdáenda Karlakórs Reykjavíkur, að kórinn hafi vaxið með hverri plötu í útgáfuflokki þessum og ber þessi síðasta plata gleggstan vott um það, því hér er kórinn svo sannarlega í essinu sínu. Hefur kórinn, undir listrænni og næmri stjórn Páls P. Pálssonar, líklega aldrei verið betri en nú. |
||