Karlakór Dalvíkur (plata)
Karlakór Dalvíkur er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1975. Á henni flytur Karlakór Dalvíkur tólf kórlög. Söngstjóri: Gestur Hjörleifsson. Undirleikari: Guðmundur Jóhannsson. Upptaka í stereó: Tónaútgáfan. Pressun: Soundtek Inc. Ljósmynd: Ingólfur Lillendahl. Prentun: Valprent hf. Akureyri.
Karlakór Dalvíkur | |
---|---|
T 14 | |
Flytjandi | Karlakór Dalvíkur |
Gefin út | 1975 |
Stefna | Kórlög |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Lagalisti
breyta- Svarfaðardalur - Lag - Texti: Pálmar Þ. Eyjólfsson - Hugrún
- Í víking - Lag - Texti: Jón Laxdal - Guðmundur Guðmundsson - Einsöngur: Helgi Indriðason
- Sól vermir jörðina - Lag - Texti: James L. Molly - Björn Daníelsson
- Vorið kemur - Lag - Texti: Sigurður Sigurjónsson - Halldóra B. Björnsson - Einsöngur: Jóhann Daníelsson
- Vögguljóð - Lag - Texti: J. A Ahlström - Viktor A. Guðlaugsson
- Yfir sveitum - Lag - Texti: W. A. Mozart - Páll Jónsson
- Sefur Sól - Lag - Texti: Sigfús Einarsson - Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti
- Þín hvíta mynd - Lag - Texti: Sigfús Halldórsson - Tómas Guðmundsson - Einsöngur:Halla Jónasdóttir
- Kór prestanna - Lag - Texti: W.A. Mozart - Jakob Jóhannesson Smári
- En syngur vornóttin - Lag - Texti: Schrader - Tómas Guðmundsson - Einsöngur: Jóhann Daníelsson
- Björt nótt - Lag - Texti: Jón Björnsson - Davíð Stefánsson
- Góða veislu gjöra skal - Lag - Texti: Íslenzkt þjóðlag - Einsöngur: Helgi Indriðason
- Syrpa:Mærin frá Spáni - Lag - Texti: Vincenzo Di. Chiara - Óttar Einarsson.Þá var svo ljúft - Lag - Texti: Charles K. Harris - Höfundur ókunnur.Þig elska ég eina - Lag - Texti: Þýskt þjóðlag - Óttar Einarsson.Blikandi haf - Lag - Texti: Venetian melody - Þýtt Friðjón Þórðarson
- Mansöngur - Lag - Texti: May H. Brahe - Höfundur ókunnur
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaSvarfaðardalur er heiti þessarar fyrstu plötu, er Karlakór Dalvíkur gefur út. Nafnið er ekki aðeins táknrænt vegna titilslags plötunnar, heldur og vegna þess að félagar í kórnum eru bæði frá Dalvík og Svarfaðardal.
Söng og tónlistarlif í Svarfaðardal og á Dalvík á sér langa sögu. Hafa þar starfað bæði blandaðir kórar og karlakórar og margir ágætir söngstjórar unnið þar mikið starf. Árið 1952 stofnuðu nokkrir áhugamenn Söngfélagið "Sindra". Starfaði það í nokkur ár undir stjórn Stefáns Bjarmans. Þá tekur Gestur Hjörleifsson við söngstjórn og hefur kórinn notið hans ágætu starfskrafta fram til þessa, en undirleik hefur aðallega annast Guðmundur Jóhannsson. Ingibjörg Steingrímsdóttir annaðist undirleik í nokkur ár og sá hún jafnframt um raddþjálfun. Árið 1960 var nafni Söngfélgsins breytt og heitir það síðan Karlakór Dalvíkur. |
||
— NN
|