Kaldaklofsfjöll
(Endurbeint frá Kaldaklofsjökull)
Kaldaklofsfjöll eða Kaldaklofsjökull er fjalllendi fyrir vestan Torfajökul. Þar eru ljósgrýtisfjöll og auðir tindar standa upp úr jöklinum. Hæsti tindurinn er Háskerðingur sem er 1278 m. Í þessu fjalllendi er mikill jarðhiti og íshvelfingar undir jökli.
Kaldaklofsfjöll | |
---|---|
Hæð | 1.278 metri |
Land | Ísland |
Sveitarfélag | Rangárþing ytra |
Hnit | 63°53′13″N 19°08′33″V / 63.8869°N 19.1425°V |
breyta upplýsingum |
Tengill
breyta- Nat.is - Torfajökull Geymt 16 júní 2011 í Wayback Machine