Döðluplóma

(Endurbeint frá Kakí)

Döðluplóma (gallaldin eða persimón(í)a) er ætur ávöxtur persimóníutrjáa. Orðið persimmon á rætur sínar að rekja til Cree-indíánanna í Norður-Ameríku og þýðir „þurrkaður ávöxtur“. Persimóníutré vaxa víða og eru döðluplómur yfirleitt gull til dökkrauðar á litinn og á bilinu 1,5-9 cm í þvermál. Döðluplómur innihalda töluvert af þrúgusykri, prótíni og nýtast í efna- og læknisfræðilegum tilgangi.

Döðluplómur á tré í Japan.