Kósi
Kósi (kós eða kóssi) er hlíf, oftast úr málmi en líka úr plasti eða öðru efni, til varnar sliti innan í gati eða lykkju sem band leikur í. Á reimuðum skóm eru tveir ristarflipar og á hvorum tveggja þeirra er oftast röð kósa sem skóþvengir eru þræddir í gegnum. Kósar eru líka algengir á beislum, beltum og seglum. Kósar eru einnig notaðir sem skraut á fatnaði, án nokkurs sérstaks tilgangs.
Í hestamennsku er talað um að ríða kósa af og merkir að ríða í einum fleng eða flengríða, það er greitt.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Kósi.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist kósa.