Jarlhettur
Jarlhettur eru röð tæplega 20 móbergstinda við Eystri-Hagafellsjökul í Langjökli. Þær flokkast sem móbergshryggur og urðu til við sprungugos undir jökli. Lengd þeirra er um 14 kílómetrar. Innsta-Jarlhetta er hæst þeirra eða 1050 metrar en Stóra-Jarlhetta (einnig þekkt sem Tröllhetta), 943 metrar, er mest áberandi úr byggð.
Jarlhettur | |
---|---|
Hæð | 1.050 metri |
Land | Ísland |
Sveitarfélag | Bláskógabyggð |
Hnit | 64°31′51″N 20°06′57″V / 64.5308°N 20.1158°V |
breyta upplýsingum |
Atriði úr Oblivion með Tom Cruise var tekið upp á Jarlhettum.[1] Tökulið myndarinnar kallaði tindinn Earl's Peak.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Landhelgisgæslan aðstoðar tökulið Oblivion“. RÚV. 9. apríl 2013. Sótt 27. nóvember 2022.
- ↑ Oblivion - Earl's Peak, sótt 27. nóvember 2022
Heimild
breyta- Ari Trausti Guðmundsson, Pétur Þorleifsson: Íslensk fjöll. Gönguleiðir á 151 tind. Reykjavík (Mál og Menning) 2004.