Jakobína Valdís Jakobsdóttir
Jakobína Valdís Jakobsdóttir (f. á Ísafirði 21. nóvember 1932) er íslensk skíðakona. Hún er fyrsta íslenska konan sem keppir á heimsmeistaramótinu á skíðum en það var árið 1954 í Åre í Svíþjóð.
Tveimur árum seinna varð hún svo fyrst íslenskra kvenna til að taka þátt í vetrarólympíuleikunum en þeir voru haldnir í Cortina d' Ampezzo á Ítalíu. Hún varð Íslandsmeistari 19 sinnum í skíðaíþróttum en hún vann sinn fyrsta titil árið 1953.[1]
Heimildir
breyta- ↑ Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Bækur.is“. baekur.is. Sótt 8. mars 2019.