Járnsaxa
Járnsaxa var gýgur í Jötunheimum í norrænni goðafræði. Hún var frilla Þórs og átti með honum Magna.[1] Hvergi kemur fram í heimildum hvort Móði hafi einnig verið barn þeirra, eða Þórs og Sifjar.
Í einni útgáfu Völuspár er ein níu mæðra Heimdalls nefnd Járnsaxa.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Skáldskaparmál, kafli 24“. heimskringla.no. Sótt 22. nóv 2023.
- ↑ Simek, Rudolf (2006). Lexikon der germanischen Mythologie. Kröners Taschenausgabe (3., völlig überarbeitete Aufl. útgáfa). Stuttgart: Alfred Kröner. ISBN 978-3-520-36803-4.