Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar - Það er bara þú
Það er bara þú er 45-snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1967. Á henni flytur hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar ásamt Vilhjálmi Vilhjálmssyni og Önnu Vilhjálms fjögur lög.
Það er bara þú | |
---|---|
SG - 514 | |
Flytjandi | Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar |
Gefin út | 1967 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breyta- „Það er bara þú“ - Lag - texti: Arland, Ravi - Loftur Guðmundsson
- „Bara fara heim“ - Lag - texti: Bjarni Guðmundsson - Guðmundur Sigurðsson
- „Elsku Stína“ - Lag - texti: R. Wallebom - Ómar Ragnarsson
- „Ég bíð við bláan sæ“ - Lag - texti: Spector - Jón Sigurðsson
Elsku Stína
breyta- Í strengjadyn og dansi ég dvaldi vorbjart kvöld
- í fögrum meyjarfansi þar sem fjörið hafði völd
- Ég hitti hasar skvísu og henni ég bauð í twist
- og síðan ráð og rósemd og rænu hef ég misst
- Elsku Stína, með ástúð þína, ég þrái kinn þín’ að kjassa
- og kyssa þinn rósrauða munn
- Elsku Stína, þín augu skína, ég veit ei hvernig það fer
- ef þú kemur með mér út í kyrrlátan runn
- Elsku Stína, ó elsku Stína, viltu mig, ég vitlaus er í þig.
- Við lögðum vanga að vanga í vímu og ástarrús
- og ég fann hárið anga og ilma eins og gróðurhús
- Þar horfðu á mig óræð, augun stór og brún
- ég kyssti meyjarmunninn, mjúkan eins og dún.
- Elsku Stína..........
- ......Endir........
- Ó, Stína, taktu ákvörðun Stína, viltu mig, ég vitlaus er í þig.