Hitra (sveitarfélag)
Hitra er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 5.156 íbúar (2022). Sveitarfélagið samanstendur af eyjunni Hitra, sem er stærsta eyjan í Trøndelag og Suður-Noregi, nokkrum minni eyjum og litlu svæði á meginlandinu.
Stjórnsýslumiðstöð sveitarfélagsins er þéttbýlið Fillan. Til sveitarfélagsins teljast einnig þéttbýlinu Hestvika, Sandstad, Forsnes og Ansnes á eyjunni Hitra, og Sunde á meginlandinu.
Sveitarfélagið Hitra á landamæri að Orklandi í austri og Heimi í suðri. Norðvestur af Hitra er eyjasveitarfélagið Frøya.