Hestakastanía
Hestakastanía eða hrossakastanía (fræðiheiti Aesculus hippocastanum) er stórt lauftré af hrossakastaníuætt. Það er upprunið í fjalllendi á Balkanskaga. Það er vinsælt götutré á Vesturlöndum.
Hestakastanía | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hestakastanía
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Aesculus hippocastanum L. |
Lýsing
breytaKjörlendi hestakastaníu er í sól, í skjóli og hlýjum stað þar sem tréð hefur nóg vaxtarrými. Tréð verður allt að 25 m hátt og allt að 25 m í þvermál í heimkynnum sínum. Krónan útbreidd og hvelfd. Smálauf eru saman 5 - 7 talsins og allt að 25 sm löng. Aldin eru hnöttótt og allt 6 sm í þvermál.[1]
Á Íslandi
breytaHestakastaníu má finna meðal annars í trjásöfnunum í Hellisgerði, Lystigarði Akureyrar og Grasagarði Reykjavíkur. Einnig eru til stálpuð eintök í eldri hluta Reykjavíkur og í Hveragerði. Hún hefur náð um 10 metra hæð. Það telst til tíðinda þegar hrossakastanía blómstrar á Íslandi enda þarf hún til þess hlý sumur. [2]
Gallery
breyta-
Hestakastaníutré í almenningsgarði
-
Lauf og bolur
-
Lauf og blóm
-
Nærmynd af blómum
-
Bolur
-
Spírandi fræ á grasflöt
Tilvísanir
breyta- ↑ „Aesculus hippocastanum (Lystigarður Akureyrar)“. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. mars 2016. Sótt 12. desember 2015.
- ↑ Hrossakastínu sem liggur á, Vísir 2005