Helga Marteinsdóttir
Helga Marteinsdóttir (1893 – 1979) var veitingakona ættuð frá Ólafsfirði. Hún rak skemmtistaðinn og veitingahúsið Röðul sem staðsettur var á horni Skipholts og Nóatúns. Hún hóf veitingarekstur á Röðli 66 ára gömul. Helga var ætið klædd í peysuföt við störf sín. Hún rak áður Vetrargarðinn í Tívolíinu í Vatnsmýrinni og aðrar veitingastofur í Reykjavík og á Akureyri.