Gullbambus
Gullbambus er sígrænn runni með upprétta stöngla, þó seinna lútandi. Vegna stuttra jarðstöngla myndar hún í upphafi þéttan hnaus, en breiðist svo meir út. Tegundin þolir niður að -22°C.
Gullbambus | ||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||||||
Phyllostachys aurea Rivière & C.Rivière Bull. Soc. Natl. Acclim. France sér. 3, 5:716, fig. 36. 1878 |
Lýsing
breytaStönglarnir eru liðskiptir, holir og rúnnaðir. Ummálið er 2-5sm, bilið milli hnjánna er 15-30sm og liturinn er í byrjun grænn, en verður í sól gulflekkóttur. Blöðin eru 2-3 á hverjum hliðarsprota. Þau eru tiltölulega smá og lensulaga. Að ofan eru þau ljósgræn, en að neðan grágræn. Plantan blómstrar eftri margra ára vöxt og deyr svo eftir blómgunina.
Rótin samanstendur af jarðstönglum og þéttri trefjarót.
Hæð x breidd og árlegur vöxtur: 2,50 x 1,50 m (250 x 50 sm/ári). Lengdarvöxturinn fer eftir varmasummu fyrra árs og er meiri í upprunalandinu (allt að 4 m).
Uppruni
breytaGullbambus er útbreiddur í fjallaskógum í héruðunum Fujian og Zhejiang í Kína. Þess utan hefur tegundin villst úr ræktun í suður BNA, Mið-Ameríku, Suður-Ameríku, Ástralíu og Nýja Sjálandi.