Gráelri
(Endurbeint frá Gráölur)
Gráelri (Alnus incana) er meðalstórt tré af birkiætt. Það verður 15-20 metra hæst og vaxtalag er frá margstofna tré eða runna til einstofna trés með keilulaga krónu. Tréð hefur svepprót eins og önnur elri.
Gráelri | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Blöð Alnus incana subsp. rugosa
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Alnus incana (L.) Moench[1] | ||||||||||||||
Heimsútbreiðsla gráelris Gráelris (A. incana)
| ||||||||||||||
Útbreiðsla A. incana subsp. incana
| ||||||||||||||
Útbreiðsla A. incana subsp. rugosa
| ||||||||||||||
Útbreiðsla A. incana subsp. tenuifolia
|
Undirtegundir
breytaUndirtegundir eru 4-6 talsins. Sumir líta á einstakar undirtegundir sem sér tegund.
- Alnus incana subsp. incana: Gráelri. — Norður-Evrópa, í fjöllum mið- og suður-Evrópu og norðaustur-Asíu.
- Alnus incana subsp. hirsuta: Hæruölur - Í fjöllum mið- og norðaustur Asíu.
- Alnus incana subsp. kolaensis — Norðaustur-Evrópa.
- Alnus incana subsp. oblongifolia - Suðvestur-Bandaríkin og norður-Mexíkó.
- Alnus incana subsp. rugosa: Vætuölur - Kanada og norðausturhluti Bandaríkjanna.
- Alnus incana subsp. tenuifolia: Blæelri - Vesturhluti Norður-Ameríku.
Á Íslandi
breytaGráelri verður allt að 15 metrar á Íslandi. Það blómstrar reklum snemma vors og blóm skemmast oft í vorfrostum sem dregur úr frætekju. Þrátt fyrir það er kal á sprotum sjaldgæft. Norsk og finnsk kvæmi eru vel aðlöguð íslenskum aðstæðum. Blæelri hefur einnig verið reynt á Íslandi. Reynsla er lítil en blæelri er hraðvaxnara en evrópska systurtegund sín. [2]
-
Lauf gráelris
-
Stofn.
-
Könglar.
-
Reklar.
-
Á Austurvelli eru stæðileg gráelri( til hægri).
Tilvísanir
breyta- ↑ Flora of North America. 2009
- ↑ Elri Geymt 27 október 2017 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins. Skoðað 3.október, 2016.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Alnus incana.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Category:Alnus incana.