Grámygla
(Endurbeint frá Gnaphalium uliginosum)
Grámygla (fræðiheiti: Filaginella uliginosa) er einær jurt af körfublómaætt. Grámygla er sjaldgæf jurt sem finnst eingöngu við jarðhitasvæði á Íslandi og aðallega á Suðvesturlandi. Hitastig við vaxtarstaði hennar er um 50°C. Hún lifir á svæðum þar sem jarðvegur er heitur og lítill jarðraki. Grámygla verður 5-12 sm há. Búsvæði hennar á Íslandi einkennist af hita í jarðvegi og litlum jarðraka. Stöngull grámyglu er þéttvaxinn hvítum hárum og marggreindur. Utan Íslands er grámygla útbreidd á suðlægum slóðum og vex þar í röku graslendi.
Grámygla | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Gnaphalium uliginosum L. 1753 not A. Rich. 1848 | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Samheiti
|
Heimild
breytaTilvísanir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Grámygla.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Gnaphalium uliginosum.