Giljagaur
einn íslensku jólasveinanna
Giljagaur er nafnið á öðrum jólasveininum sem kemur til manna, þann 13. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.
Giljagaur var talinn fela sig í fjósinu og fleyta froðuna ofan af mjólkurfötunum þegar enginn sá til.
Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:
- Giljagaur var annar,
- með gráa hausinn sinn.
- -Hann skreið ofan úr gili
- og skaust í fjósið inn.
- Hann faldi sig í básunum
- og froðunni stal,
- meðan fjósakonan átti
- við fjósamanninn tal.
Sjá nánar
breytaTengt efni
breyta- Nöfn jólasveina eftir Árna Björnsson Geymt 11 febrúar 2012 í Wayback Machine