Getty Center
Getty Center eða Getty-miðstöðin er menningarstofnun í Brentwood, Los Angeles í Kaliforníu. Hún hýsir Safn J. Paul Getty, Getty-rannsóknarstofnunina í sjónlistum og Getty-forvörslustofnunina. Upprunalega var Getty-safnið sýnt á heimili iðnjöfursins J. Paul Getty í Pacific Palisades í Los Angeles en 1996 flutti hluti þess í núverandi húsnæði. Forngripasöfnin með umdeildum forngripum frá Egyptalandi, Ítalíu og Grikklandi eru áfram hýst í Getty Villa í Pacific Palisades.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Getty Center.