GDK
GDK (stendur fyrir GIMP Drawing Kit) er frjálst forritasafn sem hjúpar grunnteikniaðgerðir gluggakerfisins sem liggur undir. GDK var upphaflega þróað ofan á X-gluggakerfið fyrir myndvinnsluforritið GIMP. Það liggur á milli X og GTK+ og sér um grunnaðgerðir eins myndsetningu grunnforma, rastamynda, bendla, leturgerða o.s.frv.
GDK | |
Hönnuður | GNOME |
---|---|
Nýjasta útgáfa | 2.16.0 |
Notkun | forritasafn |
Leyfi | GNU Lesser General Public License |
Vefsíða | library.gnome.org/devel/gdk |
GDK er venjulega sett upp sem hluti af GTK+ og útgáfur þess fylgja útgáfum GTK. Frá útgáfu 2.8 hefur það notað Cairo fyrir útfærslu vigurmynda á SVG-sniði.