Sjö helstu iðnríki heims

(Endurbeint frá G6)

Sjö helstu iðnríki heims (enska: „Group of seven“ eða G7) er pólitískt samráð milli Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Kanada og Þýskalands. Ríkin sjö eru ríkustu frjálslyndu lýðræðisríkin. Þau eiga nær 60% af heildarauðlegð heimsins og hýsa um 10% jarðarbúa. Samtökin urðu til 1973 út frá fundum fjármálaráðherra ríkjanna, en voru aldrei formlega stofnuð. Árið 1998 varð Rússland hluti af hópnum sem við það varð Átta helstu iðnríki heims, en þegar Rússland lýsti yfir þeirri ætlun sinni að innlima Krímskaga 2014 var þeim vísað úr samtökunum.

Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims á neyðarfundi út af innlimun Krímskaga í Rússland 2015.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.