Friðarsinni
Friðarsinni er manneskja sem vill að friður ríki meðal fólks. Þótt flestir vilji það, þá er hugtakið yfirleitt tengt við fólk sem beitir sér á einn eða annan hátt gegn ófriði, einkum stríðsrekstri. Friðarbarátta er nátengd baráttu fyrir m.a. lýðræði, mannréttindum og jafnrétti og samtök friðarsinna hafa þessi málefni oft öll á stefnuskrá sinni.
Fortakslausir friðarsinnar
breytaSumir friðarsinnar aðhyllast fortakslausa friðarhyggju og hafna allri valdbeitingu. Þeir álíta að leiðirnar til að berjast gegn yfirgangi, óréttlæti eða ofbeldi séu fólgnar í friðsömum aðferðum á borð við fundi, kröfugöngur, mótmæli, bréfaskriftir, undirskriftasafnanir o.s.frv.
And-heimsvaldasinnar
breytaSumir friðarsinnar vilja ekki bara frið heldur réttlátan frið, og setja valdbeitingu valdamanna ekki undir sama hatt og andspyrnu gegn henni. Þeir fordæma þannig ekki andspyrnuhreyfingar sem berjast gegn hernámi eða skæruliða sem berjast gegn einræðisstjórnum og setja auk þess ekki endilega samasemmerki milli ríkja sem þeir telja að stundi heimsvaldastefnu og ríkja sem streitast gegn henni.