Fráleiðsla
Fráleiðsla er tegund röksemdafærslu þar sem skýring er leidd út frá reglu og dæmi á þennan hátt:
- Allar baunir í þessum poka eru hvítar
- Þessar baunir eru hvítar
- Þessar baunir koma úr þessum poka
Fráleiðsla er stundum skilgreind sem sérstök útgáfa af tilleiðslu. Líkt og í tilleiðslu leiðir niðurstöðurnar ekki sjálfkrafa af forsendunum heldur er reynt að finna líklegustu tilgátuna til að skýra eitthvað tilvik. Bandaríski heimspekingurinn Charles Sanders Peirce leit á fráleiðslu sem einu aðferðina til að skapa nýja þekkingu.