Flikruætt
Flikruætt (fræðiheiti: Rhizocarpaceae) er ætt af fléttum. Flikruætt inniheldur fjórar ættkvíslir: Catolechia, Epilichen, Rhizocarpon og Poeltinula. Stundum er ættkvíslin Sporastatia talin til flikruættar en um það eru skiptar skoðanir.[1] Á Íslandi finnast fléttur af öllum áðurnefndu ættkvíslunum nema Poeltinula.[2]
Flikruætt | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Landfræðiflikra (Rhizocarpon geographicum) á grjóti.
| ||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||
| ||||||||||
Ættkvíslir | ||||||||||
Catolechia |
Útlit og einkenni
breytaTegundir af flikruætt hafa þal sem er reitaskipt en askhirslurnar eru svartar og kringlóttar eða strendar.[1]
Gróin eru yfirleitt dökk eða glær, tvíhólfa eða marghólfa, fyrir utan ættkvíslina Sporastatia sem hefur einhólfa glær gró.[1]