Fischersund
Fischersund er stutt og þröng gata niður úr Grjótaþorpinu og kemur niður að Aðalstræti í miðbæ Reykjavík. Fischersund hét áður Götuhúsastígur og lá frá Aðalstræti vestur að Götuhúsum. Nafni stígsins var breytt í Fischersund til heiðurs Waldemar Fischer kaupmanni sem stofnaði styrktarsjóð handa fátækjum ekkjum, föðurlausum börnum og efnalitlum ungum mönnum í Reykjavík og Keflavík árið 1888. Þetta er eina gatan í Reykjavík sem er kennd við danskan kaupmann.