Firestone Library
Harvey S. Firestone Memorial Library er aðalbókasafn Princeton University. Það var tekið í notkun árið 1948.
Bókasafnið var stækkað árið 1971 og aftur árið 1988 og hýsir nú yfir 80 kílómetra (50 mílur) af bókahillum. Sjálf byggingin virðist ekki ýkja stór að utan en flestar bækur eru geymdar á þremur kjallarahæðum neðanjarðar sem ná yfir stærra svæði en byggingin sjálf ofan jarðar.
Firestone bókasafnið er ekki stærsta háskólabókasafn veraldar en hýsir þó fleiri bækur miðað við nemendafjölda skólans en nokkurt annað háskólabókasafn Bandaríkjanna. Firestone bókasafn er stærsta bókasafn veraldar með opinn aðgang að bókastöflunum.
Mörg lessvæði eru í bókasafninu og hafa flestar deildir skólans eigið lesherbergi.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Harvey S. Firestone Memorial Library“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 2. apríl 2006.
Tengill
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Firestone Library.
- „Princeton University Library History“ Geymt 20 júlí 2011 í Wayback Machine