Fetaostur
Feta | |
Upprunaland | Grikkland |
---|---|
Mjólk | Kinda (>70%) og geita, svipaðir ostar gætu innihaldið kúamjólk |
Gerilsneyddur | Ræðst af tegund |
Áferð | Ræðst af tegund |
Þroskunartími | amk. 3 mánuðir |
Fetaostur er saltur og þurr ostur sem er upprunninn í Grikklandi. Fetaostur er framleiddur úr kindamjólk eða blöndu af kinda- og geitamjólk (allt að 30%). Á Íslandi er ígildi fetaosts hins vegar framleitt úr kúamjólk.