Farhenheit 451 er vísindaskáldsaga eftir Ray Bradbury. Hún er framtíðarhryllir (dystópía) og gerist í heimi þar sem eldur er ekki hættulegur heimilum og slökkviliðsmenn vinna við að kveikja elda, ekki slökkva elda. Í þessum heimi hafa bækur verið bannaðar og slökkviliðsmenn fara á heimili fólks og leita að bókum til að brenna. Sagan hefur verið kvikmynduð og var leikstjóri kvikmyndar François Truffaut. Sagan hefur einnig komið út sem teiknimyndasaga og sem rafbók en höfundur var lengi vel andstæðingur Internetsins og vildi ekki að rit sín væru aðgengileg á vefnum. Bókin kom út í íslenskri þýðingu 1968 og aftur í nýrri þýðingu árið 2019. Heimildarmynd Michael Moore Farhenheit 9/11 vísar í þessa sögu en upphaflegu titillinn er fengin vegna þess að það er hitastigið sem bækur byrja að brenna. Michael Moore segir að sinn titill vísi til atburðar sem varð til að frelsið brynni upp.

Fahrenheit 451
HöfundurRay Bradbury
Upprunalegur titillFahrenheit 451
ÞýðandiMagnús Jónsson (1962)
Þórdís Bachmann (2019)
LandBandaríkin Fáni Bandaríkjana
TungumálEnska
ÚtgefandiBallantine Books
Útgáfudagur
19. október 1953; fyrir 71 ári (1953-10-19)
ISBNISBN 9789935211637

Aðalpersóna sögunnar er Guy Montag sem er óánægður slökkviliðsmaður. Sjónvarpsskjárinn er miðpunktur heimilisins og bækur eru bannaðar svo fólk situr við skjáinn þar sem ríkið útvarpar þáttum.