Félagsfræði
Félagsfræði er fræðigrein innan félagsvísinda sem rannsakar samfélagið og samskipti milli hópa. Uppruna félagsfræðinnar má rekja til skrifa Saint-Simons og Auguste Comtes á 19. öld.
Félagsfræði er mjög breið fræðigrein og samanstendur af mörgum undirgreinum, það er að segja innan hennar eru nær ótakmarkaðir möguleikar á sérhæfingu.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Félagsfræði.
Háskóli Íslands er eini háskólinn á Íslandi sem kennir félagsfræði til BA og MA gráðu.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Félagsfræði.