Einn dans við mig
Einn dans við mig er lag með Hemma Gunn af hljómplötu hans Frískur og fjörugur. Lagið er upprunalega eftir Belgann Plastic Bertrand og heitir Ça plane pour moi.
Í texta lagsins segir frá manni sem kemur á skemmtistað klukkan tólf einsamall til í að tjútta svolítið og reyna að finna sér píu til að dansa við og jafnvel taka með sér heim.