Eineygði kötturinn Kisi
Eineygði kötturinn Kisi er myndasögupersóna eftir Hugleik Dagsson. Fimm Kisabækur hafa komið út frá 2006.
Kisi er hvítur fress sem býr í Öskjuhlíðinni í Reykjavík. Kisi er manngert dýr líkt og Andrés önd eða Villi spæta. Hann er viðkvæmur hrekkleysingi sem lætur þó skína í tennurnar þegar honum er ofboðið. Hann elskar Gilmore Girls og músakjöt með vindaloo-sósu.
Kata og Skúli
breytaBestu vinir Kisa eru Kata kanína og Skúli skjaldbaka. Kata er grunnhyggin og lauslát pæja sem nýtur þess að drekka rauðvín og skemmta sér. Hún er einnig afar fær dansari.
Skúli er dópsali. Hann býr yfir snilligáfu í efnafræði og er mjög hugvitsamur. Einnig er hann alltaf "mökkaður".
Bækur um eineygða köttinn Kisa
breyta- Eineygði kötturinn Kisi og hnakkarnir (2006)
- Eineygði kötturinn Kisi og leyndarmálið (2007)
- Eineygði kötturinn Kisi og ástandið, fyrri hluti: Annus Horribilis (2008)
- Eineygði kötturinn Kisi og ástandið, seinni hluti: Flóttinn frá Reykjavík (2009)
- Eineygði kötturinn Kisi og leyndardómar Eyjafjallajökuls (2010)