Djúpavatn
Djúpavatn er stöðuvatn og er eitt þriggja stöðuvatna í móbergshryggjunum Vesturhálsi og Sveifluhálsi [1], að mestu með grunnvatni. Það er að hluta til eldgígur [2]. Ökuleiðin Djúpavatnsleið er kennd við vatnið.
Úr vatninu rennur lækur sem um víðfemt graslendi sem nefnist Lækjarvellir. Vatnið er í 195 metra hæð.
Tilvísanir
breyta- ↑ Ekkert (júní 2016). „reykjanes-layout_6ju-ni-_a2_si-export_final“ (PDF). Reykjanes UNESCO Global Gepoark.
- ↑ Jón Jónsson (1978). Jarðfræðikort af Reykjanesskaga : 1. Skýringar við jarðfræðikort ; 2. Jarðfræðikort. eykjavík : Orkustofnun jarðhitadeild, 1978. bls. 165-166.