Dick Schoof
Hendrikus Wilhelmus Maria „Dick“ Schoof (f. 8. mars 1957) er hollenskur embættismaður og núverandi forsætisráðherra Hollands. Hann tók við embætti þann 2. júlí árið 2024. Schoof er óflokksbundinn en fer fyrir samsteypustjórn Frelsisflokksins, Bændaflokksins, Frjálslynda þjóðarflokksins og Nýs samfélagssáttmála.[1]
Dick School | |
---|---|
Forsætisráðherra Hollands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 2. júlí 2024 | |
Þjóðhöfðingi | Vilhjálmur Alexander |
Forveri | Mark Rutte |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 8. mars 1957 Santpoort, Hollandi |
Þjóðerni | Hollenskur |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn |
Maki | Yolanda (skilin) |
Börn | 2 |
Háskóli | Radboud-háskóli |
Schoof er fyrrverandi yfirmaður hollensku leyniþjónustunnar og áður en hann varð forsætisráðherra var hann ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu.[2] Eftir að Frelsisflokkur Geerts Wilders vann óvæntan sigur í þingkosningum Hollands árið 2023 tóku við langar stjórnarmyndunarviðræður. Wilders naut ekki stuðnings hinna flokkanna til að taka við embætti forsætisráðherra og því var Schoof valinn til að leiða stjórnina. Stjórn Schoofs hefur boðað strangari innflytjendalöggjöf og viðræður við Evrópusambandið um að Holland hljóti undanþágu frá innflytjenda- og hælisleitendalögum sambandsins.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ Dagný Hulda Erlendsdóttir (2. júlí 2024). „Fyrrum yfirmaður leyniþjónustu nýr forsætisráðherra“. RÚV. Sótt 2. júlí 2024.
- ↑ „Fyrrverandi leyniþjónustumaður verður forsætisráðherra“. mbl.is. 29. maí 2024. Sótt 2. júlí 2024.
- ↑ Þorgils Jónsson (28. maí 2024). „Fyrrum leyniþjónustustjóri verður forsætisráðherra Hollands“. RÚV. Sótt 2. júlí 2024.
Fyrirrennari: Mark Rutte |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |